4. nóv. 2008

Uppgötvun

Ég hef oft verið í vandræðum með að koma hugmyndum saman og hef reynt að nota allskonar tól og tæki sem maður finnur á netinu, en einhvernvegin þá hefur maður aldrei notað neitt af þessu af neinu viti og enginn í kringum mann að nota þetta svo þetta lognast bara útaf.

Á meðan ég var að hugsa þetta þá var ég með bunka af blöðum á borðinu og bjó til pappakúlur og henti í ruslakörfu og einstaka sinnum tók ég penna og notaði hann til að slá kúlurnar af borðinu. Svona hafa dagarnir liðið hver af öðrum. Þangað til í dag að síminn hringdi.

Þetta var langt og leiðinlegt símtal við einhvern gaur sem ég man ekki hver var né hvað hann sagði, en ég hélt á pennanum og blaðabunkinn var á borðinu og ósjálfrátt þá var ég farinn að búa til allskonar kassa og eitthvað sem að lýsti þessu símtali. Þarna fæddist því uppgötvun. Með því að sameina penna og bunka af blöðum (koma oft límd saman á öðrum endanum til þæginda) þá er hægt að koma hugsunum í fast form. Ég læt meðfylgjandi mynd af símtalinu fylgja hér með og fyrir miðri mynd er penninn sem ég notaði.

Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að sækja um einkaleyfi á þessari uppgötvun, en ég veit ekki til þess að neinn hafi það nú þegar, en svo hugsaði ég með mér að ég er svo mikið fyrir "open source" svo að ég ákvað bara að deila þessu með öllum. Þetta ætti að geta hjálpað til við að spara, nú geta menn bara selt tölvurnar og notað þetta saman blað og penna. Svo hef ég heyrt af því að það er til fólk sem að labbar á milli staða með umslög sem hafa verið prentuð út í tölvum, en það má eflaust nota það líka til að labba með svona bréf sem hafa verið skrifuð með penna, en það verður örugglega ekki fyrr en í fjarlægri framtíð.