23. apr. 2008

Mótmælin

Fylgdist aðeins með mótmælum vöruflutningabílstjóra í fréttum í dag og verð nú að segja að aðgerðir lögreglu minntu óneytanlega á svona lögregluaðgerðir á minniháttar knattspyrnuleik hér í Englandi. Þetta var nú óskup ómerkilegt að sjá og gat maður ekki betur séð á þessum myndum að þessi mótmæli hafi "farið úr böndunum" (eins og ég sá skrifað á mogganum) þegar löggan loksins mætti á svæðið.

Svo var nú alveg fáránlegt að sjá þessa örfáu brynvörðu menn standa í litlum hnapp og passa prúðbúnar löggur fyrir aftan sig og pössuðu þær ekki betur en svo að það var leikur einn að kasta litlum steini yfir þennan hóp og í prúðbúnu löggurnar.

Ég hef ekkert á móti löggum, en þetta var bara alveg hreint fábjánalega illa skipulagt og getur lögreglan sjálfri sér um kennt hversu mikið hún lét þetta fara úr böndunum með því að mæta með brynvarða menn sem gerðu í rauninni ekki neitt annað en að æsa menn upp. Ef það hefðu bara mætt 2-3 menn á svæðið þá hefði enginn farið að kasta grjóti eða neitt þvíumlíkt.

Hvers vegna meiga menn ekki mótmæla án þess að fólk haldi að allt sé "farið úr böndunum". Það fór ekkert úr böndunum og það að það var notað táragas segir nú bara hversu fáránleg viðbrögð lögreglurnar voru. Þessi viðbrögð verða söguleg og munu gera þessi mótmæli mjög merkileg og töluvert áhrifameiri.

Sá einnig á mogganum að forsætisráðherra fannst þetta vera rétt viðbrögð, það segir töluvert mikið um hversu lélegur karakter hann er (eins og sagt er í körfuboltanum).

Ég hlakka til að lesa meira um mótmæli gegn aðgerðum lögreglurnar í fyrramálið og mótmæli gegn ruglinu á Íslandi.

Kveðja frá London
Lifi byltingin!!!

21. apr. 2008

Helgin

Jæja þá er helgin yfirstaðin, en ég flutti um helgina á B&B (Bed and Breakfast). Sonja var í heimsókn eins og glöggir lesendur hafa væntanlega séð á skrifum Eldklerksins.
Í dag settum við í þvottavélina í fyrsta skiptið síðan við komum út og hafði safnast saman nokkuð stór skammtur af þvotti.

Þvottavélin er sem betur fer stór, en þetta komst allt saman í 2 vélar. Þurkarinn er aftur á mót frekar slappur og því er íbúðin nú undirlögð af blautum sokkum og nærbuxum.

Þar sem að mér finnst svo gaman að taka hlutina úr samhengi, þá ætla ég nú að segja aftur aðeins frá deginum í gær, en ég vaknaði um 9 leitið og fékk mér morgunmat og fór svo í sturtu, tók saman dótið mitt og tékkaði mig út af B&B. En þetta B&B er rekið af að ég held rússneskri fjölskyldu og voru allir sem unnu þarna Rússar (þetta gætu hafa verið Pólverjar eða einhver önnur þjóð sem talar slavneskt mál, en ég spurði ekkert nánar út í það). Þetta var ágætis staður á 2 hæð hússins með fínasta útsýni. Það var að vísu bara eitt klósett fyrir hæðina og ein sturta. En herbergið var með vaski og sjónvarpi.

Svo fór ég út í göngutúr með kaffibolla í Hyde Park. Eins og sjá má á myndunum þá er enska sumarið komið, vantar bara nokkur lauf á tréin, en ég held að þau komi á morgun, því þá er spáð 17°C og sól.

Þegar skötuhjúin voru vöknuð, brunuðum við með strætó í British Museum, þar sem við eyddum lunganu úr deginum þar til Sonja þurfti að fara að drífa sig til að ná fluginu heim. Ég varð bara eftir í safninu og fékk mér kaffi og köku og rölti því næst í Covent Garden.

Svo lá leiðin á Leicester Square og svo í H&M þar sem ég keypti mér nærbuxur og sokka og eina stuttermaskyrtu. Svo var bara tekin túban heim og snæddur indverskur matur eins og venja er hér, en hér borða allir alltaf indverskan mat, enda einn sá besti sem völ er á.

Ég set hér með nokrar myndir frá herberginu, útsýninu Hyde Park og strípalingi sem sýndi listir sínar í Covent Garden.


20. apr. 2008

Enska sumarið

Bjartsýni Englendinga

7. apr. 2008

Republic


Á kaffihúsinu Café Republic

6. apr. 2008

Furðulegt

Mig var ekki að dreyma, jörðin er alhvít hérna og það eru ekki jól.  Að vísu er hætt að snjóa og komin slydda í staðin.  Eftir um 20 mínútur ætlum við að rölta niðrá "The Green" sem er núna local pubbinn okkar og er með nokkur snjónvörp og tjald sem sýnir fótbolta.  Þetta er einnig aðalpöbbinn fyrir QPR aðdáendur og þarf að sýna aðgöngumiða á leikinn til að komast þarna inn ef QPR er að spila á heimavellinum sínum við Loftus Road.

Annars var ég að sjá að Ólympíueldurinn er kominn til London og verður væntanlega til sýnis á British Museum um ókomna tíð.  Það væri amk gott flipp.

Jæja, best að fara að gera sig klárann fyrir leikinn (manséster júnæted - middlesbró)

London í dag. Jólin jólin, eða er mig enn að dreyma?

4. apr. 2008

Vorum að vakna

Morgunsólin í London
Hún sést að vísu ekki á þessari mynd, en hún lýsir upp húsin daufri morgunbirtu eins og glöggt má sjá.

3. apr. 2008

London

Þá er maður kominn til London og kominn í læri hjá Gideon, en hann er kennarinn minn hjá Escape. Við höfum eytt töluverðum tíma í að flakka á milli leigusala, en hér er allt krökt af umboðum fyrir leiguíbúðir, en þar sem við erum að leita okkur að íbúð fyrir minna en 6 mánuði, þá er þetta næstum vonlaust dæmi. En við enduðum á að taka stúdíóíbúð í Notting Hill.
Fengum íbúðina á 400 pund á viku og er allt innifalið þar í, nema internet, en það kostar 10 pund á viku.
Við höfðum skoðað eina aðra íbúð sem var mjög fín, 3 herberja og allt nýtt í henni og var í rauninni verið að leggja lokahönd á hana, en hún kostaði 450 á viku, en svo fannst okkur hún bara vera of langt í burtu, of stór og í leiðinlegu hverfi (bara rólegt íbúðahverfi) auk þess sem að þar var ekkert internet.

En nú erum við semsagt búnir að ganga frá þessu máli og getum hætt að pæla í þessu og einbeitt okkur að skóla og rólegheitar stúdentalífi, en planið fyrir næstu helgar er þannig að næstu helgi ætlum við bara að slaka á og kíkja kannski á markaðinn í Notting hill (fyrir utan eina bæjarferð í mibæinn annað kvöld). Helgina þar á eftir verður bara róleg fyrir utan það að við ætlum að taka lestina út úr bænum og skella okkur á fótboltaleik með Ebbsfleet. Helgin þar á eftir verður líka róleg, fyrir utan að við ætlum að skella okkur á leik með QPR og fara svo á lokahóf QPR. Svo er bara planað meira að taka því svona rólega öll kvöld. Ætlum svo 10. maí á Wembley og horfa á úrslitaleik í FA Trophy, en þar verður Ebbsfleet vonandi krýndir FA Trophy meistarar, en þess má geta að ég og Jói eigum þetta félag ásamt nokkrum öðrum sem ég man ekki hvað heita.

Fengum okkur bitter í kvöld og var það bara alveg ágætis bjór, þrátt fyrir að barþjónninn hafi varað okkur við og sagt að við myndum ábyggilega ekki þikja þessi bjór góður. Þennan bjór drukkum við á stað sem ber heitið "The Old Swan" og var húsið byggt árið 1600, en það er þó ekki alveg öruggt, en Jói sá einhverjar tölur þarna á vegg og einhverja bókstafi líka og út frá því teljum við það alveg hugsanlega kannski öruggt að húsið hafi kannski e.t.v en þó ekki alveg örugglea verið byggt árið 1600, sem að gaf þessu öllu saman mjög skemmtilegt andrúmsloft, enda ekki á hverjum degi sem maður er kannski hugsanlega á svona gömlum pöbb.