23. des. 2008
4. nóv. 2008
Uppgötvun
Ég hef oft verið í vandræðum með að koma hugmyndum saman og hef reynt að nota allskonar tól og tæki sem maður finnur á netinu, en einhvernvegin þá hefur maður aldrei notað neitt af þessu af neinu viti og enginn í kringum mann að nota þetta svo þetta lognast bara útaf.
Á meðan ég var að hugsa þetta þá var ég með bunka af blöðum á borðinu og bjó til pappakúlur og henti í ruslakörfu og einstaka sinnum tók ég penna og notaði hann til að slá kúlurnar af borðinu. Svona hafa dagarnir liðið hver af öðrum. Þangað til í dag að síminn hringdi.
Þetta var langt og leiðinlegt símtal við einhvern gaur sem ég man ekki hver var né hvað hann sagði, en ég hélt á pennanum og blaðabunkinn var á borðinu og ósjálfrátt þá var ég farinn að búa til allskonar kassa og eitthvað sem að lýsti þessu símtali. Þarna fæddist því uppgötvun. Með því að sameina penna og bunka af blöðum (koma oft límd saman á öðrum endanum til þæginda) þá er hægt að koma hugsunum í fast form. Ég læt meðfylgjandi mynd af símtalinu fylgja hér með og fyrir miðri mynd er penninn sem ég notaði.
Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að sækja um einkaleyfi á þessari uppgötvun, en ég veit ekki til þess að neinn hafi það nú þegar, en svo hugsaði ég með mér að ég er svo mikið fyrir "open source" svo að ég ákvað bara að deila þessu með öllum. Þetta ætti að geta hjálpað til við að spara, nú geta menn bara selt tölvurnar og notað þetta saman blað og penna. Svo hef ég heyrt af því að það er til fólk sem að labbar á milli staða með umslög sem hafa verið prentuð út í tölvum, en það má eflaust nota það líka til að labba með svona bréf sem hafa verið skrifuð með penna, en það verður örugglega ekki fyrr en í fjarlægri framtíð.
6. okt. 2008
20. sep. 2008
Kertastjakar, vasi og bjórglas
Var aðeins að rifja upp NURB aðferðina og breyta nurbum í polygona og allskonar og módelaði eftir auganu kertastjaka sem stendur á borði hjá mér og einn vasa sem stendur á gólfinu. Gerði kertastjakann í gærkvöldi og vasann núna áðan og svo skellti ég einum bjór í mig líka svona fyrir svefninn (þess vegna er glasið tómt). Smellið á myndirnar til að sjá þær stórar. 





24. júl. 2008
Sigur Rós
Ekkert grín að vera grúpppía hjá Sigur Rós, en hér er listi yfir næstu tónleika hjá þeim næstu mánuðina
Annars þá er ég svona að vinna í því að koma því sem ég var að gera í London á skipulagt form svo ég geti sýnt þetta dótarí. En ég þarf einnig að fara að uppfæra gagnageymslur heimilisins og koma mér upp skipulögðu afritunar kerfi, en nú er þetta meira svona "þegar ég man eftir því" afritunar kerfi.
Svo vil ég minn'á það að ég á bráðum afmæli og vona að allir hafi nú verið duglegir að safna fyrir veglegum afmælisgjöfum.
Hér er óskalistinn:
1. Mjög rúmgott og þægilegt skrifstofuhúsnæði í 101 með frábærri tölvuaðstöðu og fullt af 3D animation hugbúnaði, en get sætt mig við að það sé bara Maya og Shake til að byrja með, restin má koma á næsta afmælisdag, æskilegt er að útsýni sé gott, en ekki skilyrði.
2. Annað eins húsnæði sem verður til staðar í 105 og verður backup fyrir hitt, en þetta má líka bara koma á næsta afmælisdag.
3. Fullt af peningum svo að ég geti bara leikið mér í þessu næstu árin.
4. Svo ef það verður einhver afgangur þá kannski bara eitthvað gott að lesa fyrir svefninn.
24. maí 2008
Evróvisjón
Þar sem að ég er einn heima um helgina þá ætla ég bara að skella mér á Evróvisjónpartíið sem félag Íslendinga í London heldur niðrí bæ
Annars þá hef ég bara verið að þvo nærbuxur og sokka í dag og rembast við að þurka þetta hér, en þurkarinn sem við höfum er frekar slappur og sama hversu mikið maður þurkar það kemur alltaf rakt út, svo maður þarf að dreifa úr öllum fötunum um alla íbúð og lofta vel út. Svo hef ég nú horft á "Secret of my success" með Michael J Fox í aðalhlutverki, þetta var einu sinni alveg alltí lagi mynd og hefur ekkert skánað með aldrinum. Nú er Súperman III í sjónvarpinu (eða II, eða jafnvel bara I, það eru amk 3 vondir kallar í myndinni sem hafa sömu krafta og súpermann). En annars þá er þetta bara falleg og rómantísk heimildarmynd og lýsir vel hvernig hin díalektíska fjarlægð milli fjarveru og nándar getur verið verið andsnúin hugmyndafræði platónskrar heimspeki.
Jæja þá er kominn tími á hina rómuðu söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva þar sem allt það besta í tónlistarlífi evrópu sameinast í stórkostlegri veislu fyrir eyru jafnt sem augu.
20. maí 2008
Kallinn
Er að vinna í þessum kalli núna og á mogunn byrjum við að tengja hann við beinagrind og gefa honum nokkur svipbrigði svo hann geti talað, gengið og veifað höndum. Ég notaði sterkasta mann Íslands sem fyrirmynd, Benedikt Magnússon, og notaði ég meðal annars myndirnar af þessari síðu.

12. maí 2008
7. maí 2008
23. apr. 2008
Mótmælin
Fylgdist aðeins með mótmælum vöruflutningabílstjóra í fréttum í dag og verð nú að segja að aðgerðir lögreglu minntu óneytanlega á svona lögregluaðgerðir á minniháttar knattspyrnuleik hér í Englandi. Þetta var nú óskup ómerkilegt að sjá og gat maður ekki betur séð á þessum myndum að þessi mótmæli hafi "farið úr böndunum" (eins og ég sá skrifað á mogganum) þegar löggan loksins mætti á svæðið.
Svo var nú alveg fáránlegt að sjá þessa örfáu brynvörðu menn standa í litlum hnapp og passa prúðbúnar löggur fyrir aftan sig og pössuðu þær ekki betur en svo að það var leikur einn að kasta litlum steini yfir þennan hóp og í prúðbúnu löggurnar.
Ég hef ekkert á móti löggum, en þetta var bara alveg hreint fábjánalega illa skipulagt og getur lögreglan sjálfri sér um kennt hversu mikið hún lét þetta fara úr böndunum með því að mæta með brynvarða menn sem gerðu í rauninni ekki neitt annað en að æsa menn upp. Ef það hefðu bara mætt 2-3 menn á svæðið þá hefði enginn farið að kasta grjóti eða neitt þvíumlíkt.
Hvers vegna meiga menn ekki mótmæla án þess að fólk haldi að allt sé "farið úr böndunum". Það fór ekkert úr böndunum og það að það var notað táragas segir nú bara hversu fáránleg viðbrögð lögreglurnar voru. Þessi viðbrögð verða söguleg og munu gera þessi mótmæli mjög merkileg og töluvert áhrifameiri.
Sá einnig á mogganum að forsætisráðherra fannst þetta vera rétt viðbrögð, það segir töluvert mikið um hversu lélegur karakter hann er (eins og sagt er í körfuboltanum).
Ég hlakka til að lesa meira um mótmæli gegn aðgerðum lögreglurnar í fyrramálið og mótmæli gegn ruglinu á Íslandi.
Kveðja frá London
Lifi byltingin!!!
21. apr. 2008
Helgin
Jæja þá er helgin yfirstaðin, en ég flutti um helgina á B&B (Bed and Breakfast). Sonja var í heimsókn eins og glöggir lesendur hafa væntanlega séð á skrifum Eldklerksins.
Í dag settum við í þvottavélina í fyrsta skiptið síðan við komum út og hafði safnast saman nokkuð stór skammtur af þvotti.
Þvottavélin er sem betur fer stór, en þetta komst allt saman í 2 vélar. Þurkarinn er aftur á mót frekar slappur og því er íbúðin nú undirlögð af blautum sokkum og nærbuxum.
Þar sem að mér finnst svo gaman að taka hlutina úr samhengi, þá ætla ég nú að segja aftur aðeins frá deginum í gær, en ég vaknaði um 9 leitið og fékk mér morgunmat og fór svo í sturtu, tók saman dótið mitt og tékkaði mig út af B&B. En þetta B&B er rekið af að ég held rússneskri fjölskyldu og voru allir sem unnu þarna Rússar (þetta gætu hafa verið Pólverjar eða einhver önnur þjóð sem talar slavneskt mál, en ég spurði ekkert nánar út í það). Þetta var ágætis staður á 2 hæð hússins með fínasta útsýni. Það var að vísu bara eitt klósett fyrir hæðina og ein sturta. En herbergið var með vaski og sjónvarpi.
Svo fór ég út í göngutúr með kaffibolla í Hyde Park. Eins og sjá má á myndunum þá er enska sumarið komið, vantar bara nokkur lauf á tréin, en ég held að þau komi á morgun, því þá er spáð 17°C og sól.
Þegar skötuhjúin voru vöknuð, brunuðum við með strætó í British Museum, þar sem við eyddum lunganu úr deginum þar til Sonja þurfti að fara að drífa sig til að ná fluginu heim. Ég varð bara eftir í safninu og fékk mér kaffi og köku og rölti því næst í Covent Garden.
Svo lá leiðin á Leicester Square og svo í H&M þar sem ég keypti mér nærbuxur og sokka og eina stuttermaskyrtu. Svo var bara tekin túban heim og snæddur indverskur matur eins og venja er hér, en hér borða allir alltaf indverskan mat, enda einn sá besti sem völ er á.
Ég set hér með nokrar myndir frá herberginu, útsýninu Hyde Park og strípalingi sem sýndi listir sínar í Covent Garden.




20. apr. 2008
7. apr. 2008
6. apr. 2008
Furðulegt
Mig var ekki að dreyma, jörðin er alhvít hérna og það eru ekki jól. Að vísu er hætt að snjóa og komin slydda í staðin. Eftir um 20 mínútur ætlum við að rölta niðrá "The Green" sem er núna local pubbinn okkar og er með nokkur snjónvörp og tjald sem sýnir fótbolta. Þetta er einnig aðalpöbbinn fyrir QPR aðdáendur og þarf að sýna aðgöngumiða á leikinn til að komast þarna inn ef QPR er að spila á heimavellinum sínum við Loftus Road.
Annars var ég að sjá að Ólympíueldurinn er kominn til London og verður væntanlega til sýnis á British Museum um ókomna tíð. Það væri amk gott flipp.
Jæja, best að fara að gera sig klárann fyrir leikinn (manséster júnæted - middlesbró)
4. apr. 2008
Vorum að vakna
Hún sést að vísu ekki á þessari mynd, en hún lýsir upp húsin daufri morgunbirtu eins og glöggt má sjá.
3. apr. 2008
London
Þá er maður kominn til London og kominn í læri hjá Gideon, en hann er kennarinn minn hjá Escape. Við höfum eytt töluverðum tíma í að flakka á milli leigusala, en hér er allt krökt af umboðum fyrir leiguíbúðir, en þar sem við erum að leita okkur að íbúð fyrir minna en 6 mánuði, þá er þetta næstum vonlaust dæmi. En við enduðum á að taka stúdíóíbúð í Notting Hill.
Fengum íbúðina á 400 pund á viku og er allt innifalið þar í, nema internet, en það kostar 10 pund á viku.
Við höfðum skoðað eina aðra íbúð sem var mjög fín, 3 herberja og allt nýtt í henni og var í rauninni verið að leggja lokahönd á hana, en hún kostaði 450 á viku, en svo fannst okkur hún bara vera of langt í burtu, of stór og í leiðinlegu hverfi (bara rólegt íbúðahverfi) auk þess sem að þar var ekkert internet.
En nú erum við semsagt búnir að ganga frá þessu máli og getum hætt að pæla í þessu og einbeitt okkur að skóla og rólegheitar stúdentalífi, en planið fyrir næstu helgar er þannig að næstu helgi ætlum við bara að slaka á og kíkja kannski á markaðinn í Notting hill (fyrir utan eina bæjarferð í mibæinn annað kvöld). Helgina þar á eftir verður bara róleg fyrir utan það að við ætlum að taka lestina út úr bænum og skella okkur á fótboltaleik með Ebbsfleet. Helgin þar á eftir verður líka róleg, fyrir utan að við ætlum að skella okkur á leik með QPR og fara svo á lokahóf QPR. Svo er bara planað meira að taka því svona rólega öll kvöld. Ætlum svo 10. maí á Wembley og horfa á úrslitaleik í FA Trophy, en þar verður Ebbsfleet vonandi krýndir FA Trophy meistarar, en þess má geta að ég og Jói eigum þetta félag ásamt nokkrum öðrum sem ég man ekki hvað heita.
Fengum okkur bitter í kvöld og var það bara alveg ágætis bjór, þrátt fyrir að barþjónninn hafi varað okkur við og sagt að við myndum ábyggilega ekki þikja þessi bjór góður. Þennan bjór drukkum við á stað sem ber heitið "The Old Swan" og var húsið byggt árið 1600, en það er þó ekki alveg öruggt, en Jói sá einhverjar tölur þarna á vegg og einhverja bókstafi líka og út frá því teljum við það alveg hugsanlega kannski öruggt að húsið hafi kannski e.t.v en þó ekki alveg örugglea verið byggt árið 1600, sem að gaf þessu öllu saman mjög skemmtilegt andrúmsloft, enda ekki á hverjum degi sem maður er kannski hugsanlega á svona gömlum pöbb.
27. mar. 2008
25. mar. 2008
23. mar. 2008
22. mar. 2008
Kvöldið
Búinn að eyða megninu af kvöldinu í að netrápast og koma þessu bloggi saman með þeim nauðsynlegu tengingum sem öll blogg þurfa að hafa.
Horfði líka hina frábæru bíómynd Water World og var eiginlega alveg búinn að gleyma því að það gleymdist að klippa myndina um svona c.a klukkutíma.
Það er nú reyndar lýgi, ég mundi alveg að hún var löng, en þetta er bara ein af þeim myndum sem ættu að passa akkúrat inn í minn bíómyndasmekk, en það er bara eitthvað sem er pirrandi við þessa mynd.
Ég skil reyndar ekki hvað er verið að setja inn í myndir sem eiga að höfða til nördalegra stráka með unglingabólur (en þannig var ég þegar myndin var gerð) börn sem eru alltaf nöldrandi eða bara gera allt til að fara í pirrunar á aðalsöguhetjunni, en þetta er eitt mest pirrandi verknaður sem hægt er að gera í bíómyndum, enda hefur nú alloft verið sagt að þessi tiltekna mynd hafi nú floppað all rækilega, og er ég á því að það hafi nú bara verið vegna þessa stóra galla.
Og hafiði það (ég veit reyndar að það les þetta enginn svo ég get sagt hvað sem mér sýnist).
Ný byrjun
Ákvað að byrja aftur núna að blogga, svo verður bara að koma í ljós síðar hvort ég nenni eitthvað að standa í þessu, en ég það verða amk tengingar hingað frá ýmsum vefsíðum sem ég tengist, s.s. youtube, smugmug, lastfm eða einhverjum öðrum síðum en ég er víst kominn út um allan vef, en þannig er það bara.














